Mávahlíð 20

Verknúmer : BN048192

806. fundur 2014
Mávahlíð 20, Þak/þakíbúð
Sótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma fyrir kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð.
Sbr. erindi sem samþykkt var 13. ágúst 1981.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. nóvember 2014 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 9. október til og með 7. nóvember 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 2,8 ferm., 30,1 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


803. fundur 2014
Mávahlíð 20, Þak/þakíbúð
Sótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma fyrir kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð.
Sbr. erindi sem samþykkt var 13. ágúst 1981.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. nóvember 2014 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 9. október til og með 7. nóvember 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


516. fundur 2014
Mávahlíð 20, Þak/þakíbúð
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsinu á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Sbr. erindi sem samþykkt var 13. ágúst 1981. Erindi var grenndarkynnt frá 9. október til og með 7. nóvember 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun : XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 9.500

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


510. fundur 2014
Mávahlíð 20, Þak/þakíbúð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsinu á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Sbr. erindi sem samþykkt var 13. ágúst 1981.Stækkun : XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 9.500

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Mávahlíð 15, 17, 18, 19, 21 og 22 og Drápuhlíð 15, 17, 19 og 21.

509. fundur 2014
Mávahlíð 20, Þak/þakíbúð
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. september 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsinu á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Sbr. erindi sem samþykkt var 13. ágúst 1981. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dgas. 17. september 2014.
Stækkun : XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 9.500

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. september 2014 samþykkt.

508. fundur 2014
Mávahlíð 20, Þak/þakíbúð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsinu á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Sbr. erindi sem samþykkt var 13. ágúst 1981.
Stækkun : XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 9.500

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

793. fundur 2014
Mávahlíð 20, Þak/þakíbúð
ÁSótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð risi í samþykkta íbúð í húsinu á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Sbr. erindi sem samþykkt var 13. ágúst 1981.
Stækkun : XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 101, 102 og 103 dags. 25. ágúst 2014.