Laugarnesvegur 56

Verknúmer : BN048160

791. fundur 2014
Laugarnesvegur 56, Takm. byggingarleyfi - Niðurrif
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi vegna niðurrifs, sbr. BN047953 að Laugarnesvegi 56 sem samþykkt var 11.07 2014.
Niðurrif: Fastanr. 201-6915, mhl. 01 merkt einbýli 152,6 ferm., fastanr. 201-6916, mhl. 01 merkt bílskúr 36 ferm.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.