Lindargata 28 -32

Verknúmer : BN048140

790. fundur 2014
Lindargata 28 -32, Fjöldi bílastæða á lóð vegna BN047355
Ekki var gerð grein fyrir fjölda bílastæða á lóð í byggingarlýsingu við samþykkt á erindi BN047355 að Lindargötu 28-32 um leyfi til að byggja fjölbýlishús með 21 íbúð auk fjögurra vinnustofa. Við skoðun byggingarfulltrúa miðast bílastæðakrafa nýbyggingar við 21 stæði samkvæmt fjölda og stærð eigna. Til frádráttar er áður samþykkt niðurrif á lóð og miðast við 2 stæði frá eignum að Lindargötu 28, 6,5 stæði frá eign að Lindargötu 30 þar sem 1,5 stæði er vegna íbúðar og 5 frá 247 fermetra smiðju, 1 stæði er frá eign að Lindargötu 32. Samtals til frádráttar vegna niðurrifs eru 9,5 stæði.
Fjöldi bílastæða til álagningar er því 11,5 stæði í gjaldflokki III til samræmis við reglur Reykjavíkurborgar um bílastæðagjald.


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.