Lindargata 28

Verknúmer : BN048090

789. fundur 2014
Lindargata 28, Takmarkað byggingarleyfi - BN047355
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir uppsteypu sökkla, kjallaraveggi, plötu yfir kjallara og lögnum í jörð skv. erindi BN047355 á lóð nr. 28-30 við Lindargötu.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.