Einholt 2

Verknúmer : BN048083

791. fundur 2014
Einholt 2, (fsp) - Breyta í gistiheimili
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili með níu gistieiningum flokki II í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Einholt.
Gistiheimilið verður rekið í tengslum við gistiheimili í mhl. 01 og í því húsi er starfsmannaaðstaða og móttaka.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. ágúst 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2014.

Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2014 og leiðbeininga á fyrirspurnarblaði.


505. fundur 2014
Einholt 2, (fsp) - Breyta í gistiheimili
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. ágúst 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. ágúst 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili með níu gistieiningum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Einholt. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2014.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2014 samþykkt.

504. fundur 2014
Einholt 2, (fsp) - Breyta í gistiheimili
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. ágúst 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili með níu gistieiningum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Einholt.

Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.

789. fundur 2014
Einholt 2, (fsp) - Breyta í gistiheimili
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili með níu gistieiningum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Einholt.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.