Sundlaugavegur 24

Verknúmer : BN048040

788. fundur 2014
Sundlaugavegur 24, Endurbyggja og stækka svalir
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka steinsteyptar svalir úr 3,2 ferm í 6,1 ferm á fyrstu og annarri hæð á suðurhlið hússins á lóð nr. 24 við Sundlaugaveg.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.