Grandavegur 42

Verknúmer : BN048016

788. fundur 2014
Grandavegur 42, Breyting á burðarvirki o.fl.- Br. BN046483
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN046483 þannig að burðarvirki í bílageymslu er breytt í holplötur í stað staðsteyptra platna, breyting í brunalýsingu, reyklosun sett í mhl 01, 02 og 03 og bílastæðum fjölgað um tvö stæði í húsinu á lóð nr. 42 við Grandaveg.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 14. júlí 2014 fylgir erindi.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


787. fundur 2014
Grandavegur 42, Breyting á burðarvirki o.fl.- Br. BN046483
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN046483 þannig að burðarvirki í bílageymslu er breyt í holplötur í stað staðsteyptra platna, breyting í brunalýsingu, reyklosun sett í mhl. 01,02 og 03 og bílastæðum fjölgað um tvö stæði í húsinu á lóð nr. 42 við Grandaveg.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 14. júlí 2014 fylgir.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.