Fáfnisnes 11

Verknúmer : BN048001

786. fundur 2014
Fáfnisnes 11, Mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á "Hluta úr Lóðauppdrætti" staðgreinir 1.675.0 vegna lóðar Fáfnisnes 11 (staðgr. 1.675.013, landnr. 106894), eða eins og sýnt er á meðfylgandi uppdrætti Landupplýsinga-deildar dagsettum 10.07. 2014.
Mæliblað hefur ekki verið útgefið af lóðinni, en lóðin er skráð 628,0 m2 í Þjóðskrá Íslands, í eldri gögnum er lóðin skráð 1117,2 m2, lóðin reynist 1116 m2.
Inná uppdráttinn er afmörkuð, með daufum línum, lóð og byggingarreitir Fáfnisnes 11, samkvæmt gildandi deiliskipulagi samþykktu í skipulags- og byggingarnefnd 18. 02. 2004 og í borgarráði 24. 02.2004 og auglýstu í B-deild Stjórnartíðinda, dags. 13. 07. 2004, sú lóð er 718 m2 að stærð.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.