Laugarnesvegur 56

Verknúmer : BN047953

790. fundur 2014
Laugarnesvegur 56, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að rífa einbýlishús og bílskúr og byggja steinsteypt fjögurra íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum á lóð nr. 56 við Laugarnesveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. ágúst 2014 fylgir erindinu.
Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 26. júní 2014.
Niðurrif: Fastanr. 201-6315, mhl. 01 merkt einbýli 152,6 ferm., fastanr. 201-6916, mhl. 01 merkt bílskúr 36 ferm.
Nýbygging: 1. hæð 180,1 ferm., 2. hæð 173,9 3. hæð 92,4 ferm.
Samtals: 446,4 ferm., 1.411,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


504. fundur 2014
Laugarnesvegur 56, Fjölbýlishús
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. júlí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 8. júlí 2014. Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjögurra íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum á lóð nr. 56 við Laugarnesveg.
Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 26. júní 2014. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Erindinu var frestað og er nú lagt frama ð nýju.
Stærð: 1. hæð 180,1 ferm., 2. hæð 173,9 3. hæð 92,4 ferm.
Samtals: 446,4 ferm., 1.411,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

500. fundur 2014
Laugarnesvegur 56, Fjölbýlishús
Á fundi skipulagsfulltrúa 11. júlí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 8. júlí 2014. Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjögurra íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum á lóð nr. 56 við Laugarnesveg.
Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 26. júní 2014. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stærð: 1. hæð 180,1 ferm., 2. hæð 173,9 3. hæð 92,4 ferm.
Samtals: 446,4 ferm., 1.411,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Frestað

499. fundur 2014
Laugarnesvegur 56, Fjölbýlishús
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 8. júlí 2014. Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjögurra íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum á lóð nr. 56 við Laugarnesveg.
Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 26. júní 2014.
Stærð: 1. hæð 180,1 ferm., 2. hæð 173,9 3. hæð 92,4 ferm.
Samtals: 446,4 ferm., 1.411,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

785. fundur 2014
Laugarnesvegur 56, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjögurra íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum á lóð nr. 56 við Laugarnesveg.
Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 26. júní 2014.
Stærð: 1. hæð 180,1 ferm., 2. hæð 173,9 3. hæð 92,4 ferm.
Samtals: 446,4 ferm., 1.411,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.