Óðinsgata 20

Verknúmer : BN047910

790. fundur 2014
Óðinsgata 20, Svalir
Sótt er um leyfi til að fjarlægja eldri timbursvalir og byggja í staðinn stærri svalir úr stáli, timbri og gleri á vesturhlið rishæðar einbýlishússins á lóð nr. 20 við Óðinsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. ágúst 2014 fylgir erindinu. Erindi var grenndarkynnt frá 11. júlí til og með 8. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


504. fundur 2014
Óðinsgata 20, Svalir
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. júlí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja eldri timbursvalir og byggja í staðinn stærri svalir úr stáli, timbri og gleri á vesturhlið rishæðar einbýlishússins á lóð nr. 20 við Óðinsgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 11. júlí til og með 8. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


498. fundur 2014
Óðinsgata 20, Svalir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. júlí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja eldri timbursvalir og byggja í staðinn stærri svalir úr stáli, timbri og gleri á vesturhlið rishæðar einbýlishússins á lóð nr. 20 við Óðinsgötu.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Óðinsgötu 18, 18A, 20A, 20B, 22 og 22A.

784. fundur 2014
Óðinsgata 20, Svalir
Sótt er um leyfi til að fjarlægja eldri timbursvalir og byggja í staðinn stærri svalir úr stáli, timbri og gleri á vesturhlið rishæðar einbýlishússins á lóð nr. 20 við Óðinsgötu.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1 og 2 dags. 24. júní 2014.