Tryggvagata 13-15

Verknúmer : BN047752

780. fundur 2014
Tryggvagata 13-15, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum varðandi lóðina Tryggvagata 15 og stofna nýja lóð Tryggvagata 13, eða eins og sýnt er á meðfylgandi uppdrætti Landupplýsingadeildar dagsettum 21.05. 2014.
Lóðin Tryggvagata 15 (staðgr. 1.117.406, landnr. 100090) er 957 m², bætt er 263 m² við lóðina úr óútvísuðu landi (landnr. 218177). lóðin verður 1220 m². Ný lóð Tryggvagata 13 (staðgr. 1.117.407, landnr. 222370), lagt er 842 m² við lóðina úr óútvísuðu landi (landnr. 218177) , lóðin verður 842 m², NB! byggingarfulltrúi samþykkti þann 23. 09. 2008 nýja lóð þarna, sú samþykkt hefur ekki komist til framkvæmda.
Sjá deiliskipulag samþykkt umhverfis- og skipulagsráði þann 12. 02. 2014, samþykkt í borgarráði þann 20. 02. 2014 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 03. 04. 2014.


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.