Sóltún 1

Verknúmer : BN047731

779. fundur 2014
Sóltún 1, takmarkað byggingarleyfi, Mánatún 7-17
F.h. Mánatúns hf, kt.: 531212-1420, óska ég eftir að takmarkað byggingarleyfi vegna Mánatúns 7-17 verði útvíkkað sbr. meðfylgjandi yfirlitsteikningar. Til grundvallar er samþykkt erindis BN046869 vegna breytinga á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 1-17 við Mánatún og 1-3 við Sóltún.
Útvíkkun takmarkaða byggingarleyfisins á við stigahúsin Mánatún 7, Mánatún 9 og Mánatún 11, og nær til uppsteypu 7. og 8. hæðar ásamt þakplötu yfir 8. hæð sbr. erindi BN045300.
Hönnunargögnum verður skilað inn til byggingarfulltrúaembættisins í dag.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.