Grandavegur 42

Verknúmer : BN047730

779. fundur 2014
Grandavegur 42, takmarkað byggingarleyfi, sökklar og botnplata
Óskað er eftir takmörkuðu byggingarleyfi í formi uppsteypu á sökklum og botnplötu bílgeymslu (MHL 7) og sem nær að hluta undir matshluta 4, 5 og 6 og íbúðarbyggingar (MHL 1, 2 og 3) á grundvelli teikninga sem skilað verður inn til embættisins um miðja þessa viku (26.03.14). sbr. erindi BN046483. Auk burðarþolsteikninga þá verður skilað inn raflögnum í sökkla og lagnateikningum í og undir botnplötu.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.