Grenimelur 16

Verknúmer : BN047523

776. fundur 2014
Grenimelur 16, Stækka svalir 1.og 2.hæð
Sótt er um leyfi til að stækka svalir og hækka svalahandrið á 1. og 2. hæð í húsinu á lóð nr. 16 við Grenimel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. apríl 2014 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


488. fundur 2014
Grenimelur 16, Stækka svalir 1.og 2.hæð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. apríl 2014 þar sem sótt er um leyfi til að stækka og hækka svalir á 1. og 2. hæð í húsinu á lóð nr. 16 við Grenimel.
Gjald kr. 9.500

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Samræmist gildandi skipulagsskilmálum.

775. fundur 2014
Grenimelur 16, Stækka svalir 1.og 2.hæð
Sótt er um leyfi til að stækka og hækka svalir á 1. og 2. hæð í húsinu á lóð nr. 16 við Grenimel.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 1 og 2 dags. 21. október 2013.