Pósthússtræti 11

Verknúmer : BN047375

771. fundur 2014
Pósthússtræti 11, takmarkað byggingarleyfi
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi að fyrir undirstöðum, botnplötu, kjallaraveggjum og plötu yfir kjallara ásamt lögnum í grunni á lóðinni nr. 11 við Pósthússtræti sbr. erindi BN046537.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.