Sæmundargata 15-19

Verknúmer : BN047358

771. fundur 2014
Sæmundargata 15-19, takmarkað byggingarleyfi
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi sem miðast við uppsteypu á plötu yfir kjallara og veggi og súlur 1. hæðar (jarðhæðar) sbr. erindi BN046396 að Sæmundargötu 15-19 og samkomulag sem gert var um framvindu verks með hliðsjón af umfangi þess.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.