Brautarholt 4

Verknúmer : BN047322

781. fundur 2014
Brautarholt 4, Gistiheimili á 2. hæð
Sótt er um leyfi til þess að byggja flóttastiga á bakhlið (suðurhlið) og innrétta gistiheimili í hluta annarrar hæðar í matshluta 02 á lóð nr. 4 við Brautarholt.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda vegna reksturs gistiheimilis og staðsetningu brunastiga dags. 23. maí 2014.
Gjald kr. 9.500 + 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.



773. fundur 2014
Brautarholt 4, Gistiheimili á 2. hæð
Sótt er um leyfi til þess að byggja flóttastiga á bakhlið (suðurhlið) og innrétta gistiheimili á annarri hæð matshluta 02 á lóðinni nr. 4 við Brautarholt.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


0">770. fundur 2014
Brautarholt 4, Gistiheimili á 2. hæð
Sótt er um leyfi til þess að byggja flóttastiga á bakhlið (suðurhlið) og innrétta gistiheimili á annarri hæð matshluta 02 á lóðinni nr. 4 við Brautarholt.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.