Úlfarsbraut 50-56

Verknúmer : BN047267

768. fundur 2014
Úlfarsbraut 50-56, takmarkað byggingarleyfi
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu og aðstöðusköpun verktaka á lóðinni nr. 50-56 við Úlfarsbraut sbr. erindi BN047094 sem samþykkt var 11.02.14, þ.e. frágang á húsgrunni sem byrjað hefur verið á samkvæmt BN035698 frá 05.06 2007.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.