Sóltún 1

Verknúmer : BN047265

768. fundur 2014
Sóltún 1, takmarkað byggingarleyfi- Mánatún 7-17
Óskað ég eftir að takmarkað byggingarleyfi vegna Mánatúns 7-17 verði útvíkkað sbr. meðfylgjandi yfirlitsteikningar. Til grundvallar er samþykkt erindis BN046869 vegna breytinga á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 1-17 við Mánatún og 1-3 við Sóltún sbr. erindi BN045300.
Útvíkkun takmarkaða byggingarleyfisins á við stigahúsið Mánatún 13 og nær til uppsteypu 1. - 6. hæðar.
Hönnunargögnum hefur verið skilað inn til byggingarfulltrúaembættisins.
Meðfylgjandi eru eftirfarandi gögn:
-Yfirlitsmyndir yfir áfangaskipti,
-Skýringarmynd sem sýnir áætlun hönnunarstjóra um skil hönnunargagna og skiptingu í hönnunaráfanga,
-Bréf byggingarstjóra með rökstuðningi vegna útgáfu takmarkaðra
byggingarleyfa skv gr. 2.4.6 í bygingarreglugerð nr 112/2012

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.