Friggjarbrunnur 55-57

Verknúmer : BN047143

765. fundur 2014
Friggjarbrunnur 55-57, takmarkað byggingarleyfi - gröftur
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir greftri húsanna á lóðinni nr. 55-57 við Friggjarbrunn og nr. 8-12 við Skyggnisbraut sbr. erindi BN047030.

Var samþykkt 30. janúar 2014.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.