Skólavörðustígur 42

Verknúmer : BN047136

770. fundur 2014
Skólavörðustígur 42, Stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka tengibyggingu og byggja á henni 2. hæð og innrétta gistirými í húsi á lóð nr. 42 við Skólavörðustíg/23 við Lokastíg.
Stækkun: 1. hæð 20,8 ferm., 66,6 rúmm., 2. hæð 52,1 ferm., 148,1 rúmm.
Samtals 72,9 ferm., 214,7 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


768. fundur 2014
Skólavörðustígur 42, Stækkun
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN041529, BN042329 og eða BN044933 fyrir hús á lóð nr. 42 við Skólavörðustíg/23 við Lokastíg.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


765. fundur 2014
Skólavörðustígur 42, Stækkun
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN041529, BN042329 og eða BN044933 fyrir hús á lóð nr. 42 við Skólavörðustíg/23 við Lokastíg.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.