Smiðjustígur 4

Verknúmer : BN047132

767. fundur 2014
Smiðjustígur 4, Breyting
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi stiga og lyftu og lagfæra útlit og skráningu í hóteli á Hljómalindarreit, sjá erindi BN044564 á lóð nr. 4 við Smiðjustíg.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


765. fundur 2014
Smiðjustígur 4, Breyting
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi stiga og lyfta og lagfæra útlit og skráningu í hóteli á Hljómalindarreit, sjá erindi BN044564 á lóð nr. 4 við Smiðjustíg.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.