Laugavegur 51

Verknúmer : BN047056

765. fundur 2014
Laugavegur 51, (fsp) - Atvinnuhúsnæði í íbúðir
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á bakhlið og innrétta tvær íbúðir á þriðju hæð húss á lóð nr. 51 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2014.

Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2014 og leiðbeininga á fyrirspurnarblaði. Sækja skal um byggingarleyfi.


477. fundur 2014
Laugavegur 51, (fsp) - Atvinnuhúsnæði í íbúðir
Á fundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. janúar 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á bakhlið og innrétta tvær íbúðir á þriðju hæð húss á lóð nr. 51 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2014.

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

476. fundur 2014
Laugavegur 51, (fsp) - Atvinnuhúsnæði í íbúðir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. janúar 2014. Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á bakhlið og innrétta tvær íbúðir á þriðju hæð húss á lóð nr. 51 við Laugaveg.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

763. fundur 2014
Laugavegur 51, (fsp) - Atvinnuhúsnæði í íbúðir
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á bakhlið og innrétta tvær íbúðir á þriðju hæð húss á lóð nr. 51 við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.