Vatnsstígur 10B

Verknúmer : BN047032

765. fundur 2014
Vatnsstígur 10B, Br.inni (afturk.46776)
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á suðurhlið og breyta innra fyrirkomulagi og eldvörnum í tvíbýlishúsi á lóðinni nr. 10B við Vatnsstíg.
Jafnframt er erindi BN046776 dregið til baka.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. janúar 2014 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 21. janúar 2014 fylgja erindinu.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


764. fundur 2014
Vatnsstígur 10B, Br.inni (afturk.46776)
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á suðurhlið og breyta innra fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 10B við Vatnsstíg.
Jafnframt er erindi BN046776 dregið til baka.
Fyrirhugað er að leigja húsið út til ferðamanna.
Umsögn minjastofnunar Íslands dags. 14. janúar 2014 og umsögn minjasafns Reykjavíkur dags.21. janúar 2014 fylgja erindinu.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


762. fundur 2014
Vatnsstígur 10B, Br.inni (afturk.46776)
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á norðurhlið, fjölga íbúðum úr einni í tvær og innrétta skammtímaleiguíbúðir í húsinu nr. 10B við Vatnsstíg.
Jafnframt er erindi BN046776 dregið til baka.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.