Vatnsstígur 8

Verknúmer : BN047029

765. fundur 2014
Vatnsstígur 8, Breytingar inni
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi og eldvörnum í einbýlishúsi á lóðinni nr. 8 við Vatnsstíg.
Jafnframt er erindi BN046803 dregið til baka.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. janúar 2014 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 21. janúar 2014 fylgja erindinu.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


764. fundur 2014
Vatnsstígur 8, Breytingar inni
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi í einbýlishúsi á lóðinni nr. 8 við Vatnsstíg.
Jafnframt er erindi BN046803 dregið til baka.
Fyrirhugað er að leigja íbúðina til ferðamanna.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


762. fundur 2014
Vatnsstígur 8, Breytingar inni
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skammtímaleiguíbúð í einbýlishúsi á lóðinni nr. 8 við Vatnsstíg.
Jafnframt er erindi BN046803 dregið til baka.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.