Hverfisgata 12

Verknúmer : BN046886

763. fundur 2014
Hverfisgata 12, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki III teg. A fyrir 130 gesti í húsi á lóð nr. 12 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. janúar 2014 fylgja erindinu, einnig umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2013 (v/fsp. BN046792) yfirlýsing hönnuðar um hljóðvist dags. 9. desember 2013 ,umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 13. janúar 2014 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 17. janúar 2014.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um samruna eigna eigi síðar en við lokaúttekt.
Þinglýsa skal kvöð um takmarkaðan opnunartíma til kl. 01:00 í samræmi við tilmæli skipulagsfulltrúa sem kom fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. janúar 2014. Einnig skal þinglýsa kvöð um að starfsemi skuli vera matsölustaður en ekki bar/næturklúbbur.


761. fundur 2014
Hverfisgata 12, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki III teg. A fyrir 130 gesti í húsi á lóð nr. 12 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. janúar 2014 fylgja erindinu, einnig umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2013 (v/fsp. BN046792) yfirlýsing hönnuðar um hljóðvist dags. 9. desember 2013 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10. desember 2013.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Umsögn Minjasafns Reykjavíkur vantar.


473. fundur 2014
Hverfisgata 12, Veitingastaður
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. desember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. desember 2013 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki III teg. A fyrir 130 gesti í húsi á lóð nr. 12 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. janúar 2014.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2013 (vegna fyrirspurnarerindis BN046792) fylgir erindinu ásamt yfirlýsingu hönnuðar um hljóðvist dags. 9. desember 2013. Gjald kr. 9.000

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. janúar 2014 samþykkt.

472. fundur 2013
Hverfisgata 12, Veitingastaður
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. desember 2013 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki III teg. A fyrir 130 gesti í húsi á lóð nr. 12 við Hverfisgötu.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2013 (vegna fyrirspurnarerindis BN046792) fylgir erindinu ásamt yfirlýsingu hönnuðar um hljóðvist dags. 9. desember 2013. Gjald kr. 9.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

759. fundur 2013
Hverfisgata 12, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki III teg. A fyrir 130 gesti í húsi á lóð nr. 12 við Hverfisgötu.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2013 (vegna fyrirspurnarerindis BN046792) fylgir erindinu ásamt yfirlýsingu hönnuðar um hljóðvist dags. 9. desember 2013.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


758. fundur 2013
Hverfisgata 12, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki III teg. A fyrir 155 gesti í húsi á lóð nr. 12 við Hverfisgötu.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. nóvember 2013 (vegna fyrirspurnarerindis BN046792) fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.