Bíldshöfði 20

Verknúmer : BN046828

758. fundur 2013
Bíldshöfði 20, Sushi-gerð - 1.hæð og skrifstofur á 3. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN046516, þannig að komið er fyrir aðstöðu til að meðhöndla og pakka hráum fiski í neytendaumbúðir á fyrstu hæð og aflokuðu skrifstofurými í suðvesturhluta þriðju hæðar hússins á lóðinni nr. 20 við Bíldshöfða.
Bréf hönnuðar dags. 15. nóvember 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


757. fundur 2013
Bíldshöfði 20, Sushi-gerð - 1.hæð og skrifstofur á 3. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN046516, þannig að komið er fyrir aðstöðu til að meðhöndla og pakka hráum fiski í neytendaumbúðir á fyrstu hæð og aflokuðu skrifstofurými í suðvesturhluta þriðju hæðar í húsi á lóð nr. 20 við Bíldshöfða.
Bréf hönnuðar dags. 15. nóvember 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.