Háberg 3-7

Verknúmer : BN046810

757. fundur 2013
Háberg 3-7, 5 - Svalaskýli
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svalalokun á íbúð 0304 í húsi á lóð nr. 5 við Háberg.
Samþykki sumra meðeigenda dags. 12. október 2013 og samþykkt húsfundar dags. 18. febrúar 2013 fylgja erindinu.
Stækkun: 26,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


756. fundur 2013
Háberg 3-7, 5 - Svalaskýli
Sótt erum leyfi til að setja svalalokun með 90% opnun með 8 mm öryggisgleri á íbúð 0304 í húsinu á lóð nr. 5 við Háberg.
Samþykki sumra fylgir dags. 12 okt. 2013.
Stækkun: 26,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.