Hesthamrar 2

Verknúmer : BN046809

758. fundur 2013
Hesthamrar 2, Viðbygging - Sólskáli
Sótt er um leyfi til að byggja sólskála við húsið á lóð nr. 2 við Hesthamra.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. nóvember 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. nóvember 2013.
Stækkun viðbygging : 12,5 ferm. 33,7 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


470. fundur 2013
Hesthamrar 2, Viðbygging - Sólskáli
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. nóvember 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sólskála sem viðbyggingu við húsið á lóð nr. 2 við Hesthamra. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. nóvember 2013..
Stækkun viðbyggingar : XX ferm. XX rúmm. Gjald kr. 9.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. nóvember 2013.

469. fundur 2013
Hesthamrar 2, Viðbygging - Sólskáli
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. nóvember 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sólskála sem viðbyggingu við húsið á lóð nr. 2 við Hesthamra.
Stækkun viðbyggingar : XX ferm. XX rúmm. Gjald kr. 9.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

756. fundur 2013
Hesthamrar 2, Viðbygging - Sólskáli
Sótt er um leyfi til að byggja sólskála sem viðbyggingu við húsið á lóð nr. 2 við Hesthamra.
Stækkun viðbyggingar : XX ferm. XX rúmm.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.