Rafstöðvarvegur 9-9A

Verknúmer : BN046745

755. fundur 2013
Rafstöðvarvegur 9-9A, Breyting inni og úti
Sótt er um leyfi til að koma fyrir íþrótta og athafnasvæði á 1 hæð, innrétta skrifstofur á 2. hæð, koma fyrir tveimur setlaugum og afgirtu leiksvæði fyrir börn, byggja skábraut á austurhlið kjallara og klæða að utan eldri húshluta á lóð nr. 9-9A við Rafstöðvarveg .
Bréf frá hönnuði dags. 29. október 2013, umsögn skipulagsfulltrúa um ramp dags. 7. október 2013, tölvupóstur frá Rúnari Svavari Svavarssyni frá OR um kvaðir lagna og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 7. október 2013 fylgja erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. nóvember 2013.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


467. fundur 2013
Rafstöðvarvegur 9-9A, Breyting inni og úti
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. nóvember 2013 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir íþrótta og athafnasvæði á 1 hæð, innrétta skrifstofur á 2. hæð, koma fyrir tveimur setlaugum og afgirtu leiksvæði fyrir börn, byggja skábraut á austurhlið kjallara og klæða að utan eldri húshluta á lóð nr. 9-9A við Rafstöðvarveg .
Bréf frá hönnuði dags. 29. október 2013, umsögn skipulagsfulltrúa um ramp dags. 7. október 2013, tölvupóstur frá Rúnari Svavari Svavarssyni frá OR um kvaðir lagna og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 7. október 2013 fylgja erindinu. Gjald kr. 9.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

754. fundur 2013
Rafstöðvarvegur 9-9A, Breyting inni og úti
Sótt er um leyfi til að koma fyrir íþrótta og athafnasvæði á 1 hæð, innrétta skrifstofur á 2. hæð, koma fyrir tveimur setlaugum og afgirtu leiksvæði fyrir börn, byggja skábraut á austurhlið kjallara og klæða að utan eldri húshluta á lóð nr. 9-9A við Rafstöðvarveg .
Bréf frá hönnuði dags. 29. október 2013, umsögn skipulagsfulltrúa um ramp dags. 7. október 2013, tölvupóstur frá Rúnari Svavari Svavarssyni frá OR um kvaðir lagna og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 7. október 2013 fylgja erindinu.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.