Klapparstígur 30/Laugav. 21

Verknúmer : BN046734

753. fundur 2013
Klapparstígur 30/Laugav. 21, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðanna Hverfisgata 28, Hverfisgata 30, Hverfisgata 32-32A, Hverfisgata 32B, Hverfisgata 34, Smiðjustígur 4, Smiðjustígur 4A, Smiðjustígur 6, Laugavegur 17, Laugavegur 19, Klapparstígur 30 og Laugavegur 21 og Klapparstígur 28, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar dagsettum 25. 10. 2013.
Klapparstígur 30 og Laugavegur 21 (staðgr. 1.171.108, landnr. 101374), lóðin er 535 m², teknir 100 m² af lóðinni og lagt við nýja lóð Laugavegur 21, teknir 147 m² af lóðinni og lagt við borgarland (218177), lóðin verður 288 m² og verður skráð samkvæmt ákvörðun byggingarfulltrúa.
Sjá samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs 30. 01. 2013, samþykkt borgarráðs 07. 02. 2013 og auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, dags. 20. 03. 2013.
Sjá samþykkt byggingarfulltrúa 13. 02. 1997.
Sjá þinglýst skjöl nr. A-6211/96 og nr. A-05051/97.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.