Brekknaás 9

Verknúmer : BN046726

759. fundur 2013
Brekknaás 9, (fsp) - Hesthús - reiðskemma
Spurt er hvort leyft yrði að byggja 30 hesta hús og litla reiðskemmu til reiðkennslu á lóð nr. 9 við Brekknaás.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. desember 2013.

Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagfulltrúa dags. 5. desember 2013.


471. fundur 2013
Brekknaás 9, (fsp) - Hesthús - reiðskemma
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. nóvember 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja 30 hesta hús og litla reiðskemmu til reiðkennslu á lóð nr. 9 við Brekknaás. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. desember 2013.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. desember 2013, samræmist ekki deiliskipulagi.

467. fundur 2013
Brekknaás 9, (fsp) - Hesthús - reiðskemma
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. nóvember 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja 30 hesta hús og litla reiðskemmu til reiðkennslu á lóð nr. 9 við Brekknaás.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

754. fundur 2013
Brekknaás 9, (fsp) - Hesthús - reiðskemma
Spurt er hvort leyft yrði að byggja 30 hesta hús og litla reiðskemmu til reiðkennslu á lóð nr. 9 við Brekknaás.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.