Sjafnargata 11

Verknúmer : BN046679

757. fundur 2013
Sjafnargata 11, Endurbyggja bílskúrsþak
Sótt er um leyfi til að endurbyggja bílskúr, fjarlægja steypta þakplötu og byggja timburklætt, hallandi sperruþak klætt með pappa, á lóð nr. 11 við Sjafnargötu.
Stærðir eru óbreyttar; 29,0 ferm. og 83,1 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


752. fundur 2013
Sjafnargata 11, Endurbyggja bílskúrsþak
Sótt er um leyfi til að endurbyggja bílskúr, fjarlægja steypta þakplötu og byggja timburklætt, hallandi sperruþak með pappa, á lóð nr. 11 við Sjafnargötu.
Stærðir eru óbreyttar.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.