Hagatorg Hótel Saga

Verknúmer : BN046676

768. fundur 2014
Hagatorg Hótel Saga, Reyndarteikningar o.fl.
Sótt er um leyfi til að uppfæra aðalteikningar í tengslum við gerð eignaskiptasamnings, sameina matshluta 01 og 03 í matshula 01, sækja um nýja útihurð á bankaútibúið að norðan og nýja hurð í skála að norðanverðu Hótel Sögu á lóð nr. 1 við Hagatorg.
Erindi fylgir brunahönnun frá VSI dags. 20. febrúar 2014, einnig samþykki meðeigenda dags. 13 febrúar 2014 og bréf frá hönnuði dags. 14. febrúar 2014 .
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


752. fundur 2013
Hagatorg Hótel Saga, Reyndarteikningar o.fl.
Sótt er um leyfi til að uppfæra aðalteikningar í tengslum við gerð eignaskiptasamnings og sækja um nýja útihurð á bankaútibúið að norðan og nýja hurð í skála að norðanverðu Hótel Sögu á lóð nr. 1 við Hagatorg.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.