Sæviðarsund 17

Verknúmer : BN046666

753. fundur 2013
Sæviðarsund 17, Reyndart. v/eignaskipta
Vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar er sótt um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi og áður gerðri stækkun í kjallara hússins á lóðinni nr. 17 við Sæviðarsund.
Stærð: Stækkun 9,3 ferm. og 21,4 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


751. fundur 2013
Sæviðarsund 17, Reyndart. v/eignaskipta
Vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar er sótt um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í kjallara hússins á lóðinni nr. 17 við Sæviðarsund.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.