Tómasarhagi 25

Verknúmer : BN046663

752. fundur 2013
Tómasarhagi 25, Hurð út í garð - hjólaskýli
Sótt er um leyfi til að byggja hjóla- og vagnageymslu við norðausturhlið, gera gönguhurð frá bílageymslu út á lóð, gera garðhurð út úr íbúð 0101 og verönd fyrir framan húsið á lóð nr. 25 við Tómasarhaga.
Samþykki meðeigenda dags. 2. okt. 2013 fylgir.
Stærð hjóla og vagnageymslu B rými : 5,2 ferm., 8,7rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


751. fundur 2013
Tómasarhagi 25, Hurð út í garð - hjólaskýli
Sótt er um leyfi til að byggja hjóla og vagnageymslu við norð-austur hlið, gera gönguhurð frá bílageymslu út á lóð og gera garðhurð út úr íbúð 0101 og verönd fyrir framan húsið á lóð nr. 25 við Tómasarhaga.
Samþykki meðeigenda dags. 2. okt. 2013 fylgir.
Stærð hjóla og vagnageymslu B rými : XX ferm., XXrúm.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.