Bústaðavegur 3

Verknúmer : BN046661

753. fundur 2013
Bústaðavegur 3, Sjálfsafgreiðslustöð - Skeljungur
Sótt er um leyfi til að endurnýja og breyta lítillega áður samþykktu erindi, sjá BN042261, þar sem veitt var leyfi til að byggja sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti með auglýsingaskilti utan lóðar, ásamt dælueyju og tönkum undir eyjunni á lóð nr. 3 við Bústaðaveg.
Bréf hönnuðar dags. 7. og 25. október 2013 fylgir erindinu.
Erindi fylgir samþykki gatna- og eignaumsýslu Reykjavíkurborgar dags. 9. október 2010 .
Þinglýst samþykki lóðarhafa Skógahlíðar 14 dags. 29. mars , Skógahlíðar 16 dags. 4. apríl og Skógarhlíðar 18 dags. 18. apríl 2011 vegna stígs við lóðarmörk á lóðinni Bústaðavegur 3 fylgir erindinu.
Stærð: Sjálfsafgreiðslustöð 54.2 ferm. og 121,4 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


751. fundur 2013
Bústaðavegur 3, Sjálfsafgreiðslustöð - Skeljungur
Sótt er um leyfi til að endurnýja og breyta áður samþykktu erindi, sjá BN042261, þar sem veitt var leyfi til að byggja sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti með auglýsingaskilti utan lóðar, ásamt dælueyju og tönkum undir eyjunni á lóð nr. 3 við Bústaðaveg.
Erindi fylgir samþykki gatna- og eignaumsýslu Reykjavíkurborgar dags. 9. október 2010.
Stærð: Sjálfsafgreiðslustöð 54.2 ferm. og 120,0 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.