Lindargata 1-3

Verknúmer : BN046553

748. fundur 2013
Lindargata 1-3, Endurnýja glugga, múrviðgerðir o.fl.
Sótt er um leyfi fyrir viðhaldsframkvæmdum sem felast í að endurnýja glugga, endursteina útveggi og lagfæra þak á Arnarhvoli á lóð nr. 1-3 við Lindargötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 16.9. 2013, skýringaruppdráttur dags. 16.9. 2013, sem sýnir glugga og gler, bréf Minjastofnunar Íslands dags. 11.9. 2013 og bréf Minjasafns Reykjavíkur dags. 16.9. 2013.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.