Vesturbrún 16

Verknúmer : BN046515

774. fundur 2014
Vesturbrún 16, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr norðan við fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Vesturbrún.
Erindið var grenndarkynnt frá 3. mars til og með 31. mars 2014. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa.
Stærð: 41,6 ferm., 121,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


486. fundur 2014
Vesturbrún 16, Bílskúr
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. febrúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr norðan við fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Vesturbrún. Erindi var grenndarkynnt frá 3. mars til og með 31. mars 2014. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa. Stærð: 41,6 ferm., 147,5 rúmm. Gjald kr. 9.000

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


480. fundur 2014
Vesturbrún 16, Bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. febrúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr norðan við fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Vesturbrún.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa. Stærð: 41,6 ferm., 147,5 rúmm. Gjald kr. 9.000

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Vesturbrún 14 og 18 og Kleifarvegi 13 og 15.

767. fundur 2014
Vesturbrún 16, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr norðan við fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Vesturbrún.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa.
Stærð: 41,6 ferm., 147,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 101,103, 104 og 100 síðast breytt 23. september 2013.


747. fundur 2013
Vesturbrún 16, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr norðan við fjölbýlishús á lóð nr. 16 við Vesturbrún.
Stærð: 41,6 ferm., 147,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.