Katrínartún 9

Verknúmer : BN046508

748. fundur 2013
Katrínartún 9, Hækka þak - kvistir, verönd
Sótt er um leyfi til þess að byggja kvisti og svalir á þakhæð og útbúa verönd að suðurhlið kjallara hússins á lóðinni nr. 9 við Katrínartún.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júní 2013 vegna fyrirspurnarerindis BN045951 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun 73,4 ferm. og 139,8 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


746. fundur 2013
Katrínartún 9, Hækka þak - kvistir, verönd
Sótt er um leyfi til þess að hækka þak og byggja kvisti og svalir á þakhæð (2.h.) hússins á lóðinni nr. 9 við Katrínartún.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júní 2013 vegna fyrirspurnarerindis BN045951 (neikv. ums.) fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun 73,4 ferm. og 139,8 rúmm.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.