Frakkastígur 26A

Verknúmer : BN046491

749. fundur 2013
Frakkastígur 26A, (fsp) - Veitingastaður
Spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi, byggja svalir og starfrækja veitingahús í flokki 2 í einbýlishúsi á lóðinni nr. 26A við Frakkastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. september 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013.

Jákvætt.
Með vísan til leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013. Sækja þarf um byggingarleyfi.


461. fundur 2013
Frakkastígur 26A, (fsp) - Veitingastaður
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. september 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. september 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi, byggja svalir og starfrækja veitingahús í flokki 2 í einbýlishúsi á lóðinni nr. 26A við Frakkastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013,

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013,

459. fundur 2013
Frakkastígur 26A, (fsp) - Veitingastaður
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. september 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi, byggja svalir og starfrækja veitingahús í flokki 2 í einbýlishúsi á lóðinni nr. 26A við Frakkastíg.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

746. fundur 2013
Frakkastígur 26A, (fsp) - Veitingastaður
Spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi, byggja svalir og starfrækja veitingahús í flokki 2 í einbýlishúsi á lóðinni nr. 26A við Frakkastíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.