Laugavegur 105

Verknúmer : BN046425

743. fundur 2013
Laugavegur 105, Breyting inni
Sótt er um leyfi til að breyta leyfilegum gestafjölda í 260, færa starfsmannaaðstöðu í rými á 3. hæð og fella burt eldvarnarhurðir á göngum, sjá erindi BN045029, í gistiskála á 3. 4. og 5. hæð húss á lóð nr. 105 við Laugaveg.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.