Tjarnargata 30

Verknúmer : BN046422

743. fundur 2013
Tjarnargata 30, Loka bakinngangi ofl.
Sótt er um leyfi til að loka bakinngangi, brjóta niður tröppur og breikka dyr út á svalir á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 30 við Tjarnargötu.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.