Þjóðhildarstígur 2-6

Verknúmer : BN046409

744. fundur 2013
Þjóðhildarstígur 2-6, (fsp) - Viðbygging
Spurt er hvort leyft yrði að byggja um það bil 120 fermetra viðbyggingu að suðurhlið annarrar hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 2-6 við Þjóðhildarstíg.
Bréf hönnuðar dags. 8. ágúst 2013 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. ágúst 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2013.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2013.


457. fundur 2013
Þjóðhildarstígur 2-6, (fsp) - Viðbygging
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. ágúst 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja um það bil 120 fermetra viðbyggingu að suðurhlið annarrar hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 2-6 við Þjóðhildarstíg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2013. Bréf hönnuðar dags. 8. ágúst 2013 fylgir erindinu.

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað, með vísan till umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2013. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

743. fundur 2013
Þjóðhildarstígur 2-6, (fsp) - Viðbygging
Spurt er hvort leyft yrði að byggja um það bil 120 fermetra viðbyggingu að suðurhlið annarrar hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 2-6 við Þjóðhildarstíg.
Bréf hönnuðar dags. 8. ágúst 2013 fylgir erindinu.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.