Laugarásvegur 36

Verknúmer : BN046347

746. fundur 2013
Laugarásvegur 36, Fyrirkomulag á lóð
Sótt er um leyfi til þess að breyta fyrirkomulagi, byggja verönd, koma fyrir setlaug og fjölga bílastæðum úr einu í tvö á einbýlishúsalóðinni nr. 36 við Laugarásveg.
Samþykki nágranna að Laugarásvegi 34 og 38 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. ágúst 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2013.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


745. fundur 2013
Laugarásvegur 36, Fyrirkomulag á lóð
Sótt er um leyfi til þess að byggja verönd, koma fyrir setlaug, fjölga bílastæðum og breyta fyrirkomulagi á einbýlishúsalóðinni nr. 36 við Laugarásveg.
Samþykki nágranna að Laugarásvegi 34 og 38 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. ágúst 2913 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2013.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2013.


458. fundur 2013
Laugarásvegur 36, Fyrirkomulag á lóð
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. ágúst 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 13. ágúst 2013. Sótt er um leyfi til þess að byggja verönd, koma fyrir setlaug, fjölga bílastæðum, byggja stoðveggi á lóðarmörkum og breyta fyrirkomulagi á einbýlishúsalóðinni nr. 36 við Laugarásveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2013.
Samþykki nágranna í húsum nr. 34 og 38 við Laugarásveg (ódags.) fylgir erindinu. Gjald kr. 9.000

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2013 samþykkt.

456. fundur 2013
Laugarásvegur 36, Fyrirkomulag á lóð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 13. ágúst 2013. Sótt er um leyfi til þess að byggja verönd, koma fyrir setlaug, fjölga bílastæðum, byggja stoðveggi á lóðarmörkum og breyta fyrirkomulagi á einbýlishúsalóðinni nr. 36 við Laugarásveg.
Samþykki nágranna í húsum nr. 34 og 38 við Laugarásveg (ódags.) fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

742. fundur 2013
Laugarásvegur 36, Fyrirkomulag á lóð
Sótt er um leyfi til þess að byggja verönd, koma fyrir setlaug, fjölga bílastæðum, byggja stoðveggi á lóðarmörkum og breyta fyrirkomulagi á einbýlishúsalóðinni nr. 36 við Laugarásveg.
Samþykki nágranna í húsum nr. 34 og 38 við Laugarásveg (ódags.) fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


741. fundur 2013
Laugarásvegur 36, Fyrirkomulag á lóð
Sótt er um leyfi til þess að byggja verönd, koma fyrir setlaug, fjölga bílastæðum og breyta fyrirkomulagi á einbýlishúsalóðinni nr. 36 við Laugarásveg.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.