Gnoðarvogur 43

Verknúmer : BN046247

738. fundur 2013
Gnoðarvogur 43, Breyting á BN045885 - stigi o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, m. a. flóttastiga á austurhlið og texta um eldvarnir í byggingarlýsingu viðbyggingar við Menntaskólans við Sund á lóð nr. 43 við Gnoðarvog.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.