Aðalstræti 7

Verknúmer : BN046079

737. fundur 2013
Aðalstræti 7, Loka húsasundi
Sótt er um leyfi til þess að loka húsasundi með timburgrindverki á lóðinni nr. 7 við Aðalstræti.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. júní 2013 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags 20. júní 2013 fylgja erindinu.
Útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa dags. 18. júní 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


736. fundur 2013
Aðalstræti 7, Loka húsasundi
Sótt er um leyfi til þess að loka húsasundi með timburgrindverki á lóðinni nr. 7 við Aðalstræti.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. júní 2013 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa dags. 18. júní 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


447. fundur 2013
Aðalstræti 7, Loka húsasundi
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. júní 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 21013 þar sem sótt er um leyfi til þess að loka húsasundi með timburgrindverki á lóðinni nr. 7 við Aðalstræti. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. júní 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

735. fundur 2013
Aðalstræti 7, Loka húsasundi
Sótt er um leyfi til þess að loka húsasundi með timburgrindverki á lóðinni nr. 7 við Aðalstræti.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. júní 2013 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. júní 2013.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


446. fundur 2013
Aðalstræti 7, Loka húsasundi
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 21013 þar sem sótt er um leyfi til þess að loka sundi að lóð nr. 9 á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Gjald kr. 9.000
Frestað.

733. fundur 2013
Aðalstræti 7, Loka húsasundi
Sótt er um leyfi til þess að loka sundi að lóð nr. 9 á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.