Hverfisgata 54

Verknúmer : BN045806

727. fundur 2013
Hverfisgata 54, (fsp) - Svalir 3. hæð
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir fyrir íbúð 0301 á norðurhlið (götuhlið) þriðju hæðar íbúða- og atvinnuhúss á lóðinni nr. 54 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. apríl fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. apríl 2013.

Jákvætt.
Ekki gerð athugasemd við erindið með vísan til skilyrða í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. apríl 2013. Sækja þarf um byggingarleyfi.


439. fundur 2013
Hverfisgata 54, (fsp) - Svalir 3. hæð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir fyrir íbúð 0301 á norðurhlið (götuhlið) þriðju hæðar íbúða- og atvinnuhúss á lóðinni nr. 54 við Hverfisgötu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. apríl 2013.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. apríl 2013 samþykkt.

725. fundur 2013
Hverfisgata 54, (fsp) - Svalir 3. hæð
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir fyrir íbúð 0301 á norðurhlið (götuhlið) þriðju hæðar íbúða- og atvinnuhúss á lóðinni nr. 54 við Hverfisgötu.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.