Tangabryggja 14-24

Verknúmer : BN045775

725. fundur 2013
Tangabryggja 14-24, Breyta í íbúðir og atvinnustarfssemi
Sótt er um leyfi til að innrétta 15 íbúðir á 2. og 3. hæð með nýtanlegu risi og 5 einingar atvinnuhúsnæðis á 1. hæð í þegar byggðu húsi á lóð nr. 14-16 við Tangabryggju.
Stærðir: húsið hefur staðið ónotað, fokhelt í 15 ár. 1. hæð 585,5 ferm., 2. hæð 563,1 ferm., 3. hæð 563,1 ferm., ris 255,7 ferm.,
Samtals 1.967,4 ferm., 6.265,6 rúmm.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 20.3. 2013 og annað dags. 3.4. 2013.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


724. fundur 2013
Tangabryggja 14-24, Breyta í íbúðir og atvinnustarfssemi
Sótt er um leyfi til að innrétta 15 íbúðir á 2. og 3. hæð með nýtanlegu risi og 5 einingar atvinnuhúsnæði á 1. hæð í húsi á lóð nr. 14-16 við Tangabryggju.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 20.3. 2013.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.