Grandagarður 16

Verknúmer : BN045747

723. fundur 2013
Grandagarður 16, Klæðning
Sótt er um leyfi til að klæða með hvítri álklæðningu á þar til gert burðarkerfi úr áli á milli glugga 1. hæðar og 2. hæðar í húsinu á lóð nr. 16 við Grandagarð.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 27. feb. 2013 fylgir.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.